Óvissa um leiðsagnargildi gagna? Notkun gagna við mótun menntastefnu og skólastarfs

Jón Torfi Jónasson
2020 Tímarit um Uppeldi og Menntun  
Greinin fjallar annars vegar um þá miklu áherslu sem lögð er á notkun gagna í skólastarfi og hins vegar um það að þau gefi litla leiðsögn í mikilvægum efnum. Umfang og margbreytileiki gagna vex hratt og margir ólíkir heimar gagna sem tengjast menntun eru í þróun. Ljóst er að trúin á nytsemi gagna er sterk bæði hjá alþjóðastofnunum og öðrum sem stýra menntun, enda eru þau oft ómissandi. Lykilspurningin er tvíþætt: Að hvaða marki leiðbeina gögn um setningu markmiða í menntun og um hvað skuli gert
more » ... í menntakerfum eða í skólastofum? Rök eru færð fyrir því að þótt þau séu nytsamleg dugi þau furðu skammt í þessum tilvikum. Sama á við um rannsóknir sem gegna samt lykilhlutverki í þróun skilnings og hugmynda. Umfjöllun um markmið menntunar ætti að vega þungt í menntun fagfólks og í umræðu um menntun og nauðsynlegt er að hafa hugfast að áhersla á gögn kann að jaðarsetja umræðu um markmið.
doi:10.24270/tuuom.2019.28.8 fatcat:gk5au7r3bzdylndovsh7s5rsdq