Andri Snær Magnason: Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð

Guðmundur Heiðar Frímannsson
2006 Stjórnmál og Stjórnsýsla  
Ögurstundir eru sjaldgæfar og það er fágætt að rithöfundur gefi út bók sem hittir á tvær slíkar. Andri Snær Magnason gaf út snemma á þessu ári bókina Draumalandið sem fjallar um tvö mikilvæg málefni íslensks samfélags. Annars vegar tekur hann fyrir tengsl Íslands og bandarísks hers, hins vegar orku- og virkjanamál og þar með náttúruverndarmál almennt. Á þessu ári ákváðu bandarísk stjórnvöld að kalla heim herlið sitt frá Íslandi og frá og með 1. október 2006 er Ísland herlaust. Á árinu var lokið
more » ... við Hálslón við Kárahnjúka og fram komu svo umfangsmiklar óskir um uppbyggingu stóriðju á Íslandi að ekki er víst að til sé orka í landinu til að byggja upp öll þessi stóriðjufyrirtæki. Það ætti kannski ekki að koma á óvart að bókin hafi selst vel, hún er vel skrifuð, hún er skemmtileg og hún hitti á þessa tvöföldu ögurstund. Það þýðir ekki að hún sé rétt í einu og öllu en það er vel þess virði að hugsa með höfundinum um viðfangsefni hans.
doaj:e5abc12d393e43f7a705ae6ae438555d fatcat:atjmjcghlrggjeqrgk676stgae